Ekki er margt nýtt undir sólinni þegar það kemur að hardcore pönki. Til að finna eitthvað nýtt og ferskt þarf oftar en ekki að rusla sér í gegnum heilan hafsjó af drasli sem hefur ekkert fram að bera nema meðalmennsku. Sem betur fer er alltaf eitthvað nýtt þarna úti sem sannfærir mig reglulega um að hardcore sé best í heimi. Bönd eins og Blacklisted, Converge, Cult Ritual, Pulling Teeth og Trap Them eru meðal þeirra banda sem ná að búa til eitthvað nýtt úr þeim þrönga ramma sem hardcore er. Nýjasta bandið innan þessa geira fyrir mér er Kaliforníska bandið
LEWD ACTS. Lewd Acts er tiltölulega nýtt band, gaf út sitt fyrsta demó fyrir fjórum árum og hafa verið iðnir við kolann alla tíð síðan. Deathwish, sem þeir eru á samningi hjá eins og er, lýstu þeim sem
best varðveitta leyndarmáli San Diego, en ekki mikið lengur. Eins og fyrr segir er bandið á samningi hjá Jacob Bannon og félögum í Deathwish og á árinu gáfu þeir út sína fyrstu breiðskífu hjá útgáfufélaginu. Sú ber nafnið
Black Eye Blues og er með betri plötum ársins fyrir mér. Dómur um plötuna kemur von bráðar.

WWW.GETLEWD.COM
WWW.MYSPACE.COM/LEWDACTS
No comments:
Post a Comment