Sumarið virðist vera búið. Eða það er allavega búið fyrir mér þegar ég get ekki setið útá svölum lengur með sólgleraugu að hlusta á sumartónlist. Þegar það er orðið of kalt til þess, þá er sumarið búið. Það voru nokkrar plötur sem ég rokkaði jafnt og þétt í þessari stemmingu í sumar, bæði gamlar og nýrri. Þetta eru þær:
The Jesus & Mary Chain - Automatic

Það er mjög auðvelt að heyra hvaðan Singapore Sling hafa áhrif sín eftir að hafa hlustað eitthvað á þessa plötu. Það er ekki hægt annað en að vera með sólgleraugu þegar þessi plata er á fóninum, mikið sumar í gangi. Þessi plata er svo hallærisleg að hún fer í heilan hring og verður töff. Trommurnar eru forritaðar og já það er MJÖG áberandi, það fer ekkert framhjá manni, einnig er bassinn gerður af synthesizer. Jájá ekkert rosalega töff en einhvernveginn varð þetta að algerri snilld. Between planets er gott partí.
Dillinger Four - C I V I L W A R
Það er orðið eiginlega vandræðalegt hvað ég hef hlustað mikið á þessa plötu, svona í alvöru talað, það er eins og ég geri ekki annað í lífinu en að hlusta á Civil War. Það er heldur engin tilviljun því að næstum því hvert einasta lag á henni er gott, misgóð náttúrulega eru lögin en þau eru öll eiginlega góð. Þetta band er sumarpönkið. Hef reyndar ekki mikið kynnt mér annað efni sveitarinnar, ég þori því varla, er hræddur um að verða fyrir vonbrigðum þar sem þessi plata er svo of góð. Like eye contact in an elevator er sjálfsagt uppáhaldslagið mitt af plötunni, skemmtilega kærulaust(ekki í meiningunni að það sé illa spilað) og einfalt. Þeir sem hafa gaman af okkar æðislegu Buxnaskjónum og Innvortis ættu að tékka á þessum Bandarískum frændum þeirra.
Totalitär - Vi är Eliten

Þó að Svíar hafi ekki komist á HM eru mega þeir hugga sig við það að þeir eru að öllum líkindum heimsmeistarar í pönki. Já og náttúrulega munntóbaksnotkun. Þessum gaukum liggur talsvert meira á hjarta en Dillinger Four, þetta er talsvert reiðara sjitt. Það er ljóst frá fyrstu sekúndu hvert þessi plata er að stefna og hún fer nákvæmlega þangað, brjáluð þungapönkskeyrsla af kolrugluðum Svíum að segja eitthvað bull á sænsku. Og það er geðveikt. Svo er eitthvað við sándið á plötunni sem gefur henni svo intense fílíng, ég ráðlegg fólki ekki að neita mikils koffíns við að hlusta á plötuna, það getur orsakast í grimmu herbergis moshi og skápa-stagedævi.